Glæsileg sýningaríbúðin er í Suðurhellu 12. Gólfefni er harðparket með hljóðdempandi undirlagi á anddyri, eldhúsi, stofum, herbergjum og göngum.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og blöndunartækjum frá Tengi.
Afhendist fullbúin með gólfefnum en án uppþvottavélar og ísskáps.
Húsin standa á horni Suðurhellu og Krísuvíkurvegar og markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem íbúðum á jarðhæð fylgja afmarkaðir sérafnotafletir og íbúar í íbúðum efri hæða geta notið fallegs útsýnis til fjalla.
Fyrir framan hús verða bílastæði og á bak við hús verður sameiginlegur garður með leiktækjum.
Stutt er í göngu- og hjólaleiðir meðal annars Ásfjall, Ástjörn og Hvaleyrarvan.
Í sýningaríbúð Suðurhellu er sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá Axis ásamt blöndunartækjum og vaski frá Tengi.
Í myndbandinu ferðumst við um íbúðina og skoðum helstu einkenni hennar.“
ÞBF ehf. er framkvæmdaraðili sem sérhæfir sig í byggingu mannvirkja. Eigendur ÞBF ehf. hafa rúmlega 40 ára reynslu í byggingu íbúðarhúsnæðis.
Markmið fyrirtækisins er að byggja íbúðarhúsnæði fyrir almenning með áherslu á vönduð vinnubrögð og ánægju viðskiptavina. Vandaðar íbúðir og vel hannaðar íbúðir á góðu verði.